ekki segja að þetta hafi verið lelegt blogg. Eg bloggaði þó;)Ester Harpa Vignisdóttir

Heyriði....!

- ég var send til skólastjórans áðan. Fyrir það að hafa fengið hláturkrampa í tíma.

- Fótboltinn er byrjaður á fullu, og ætlar Ester Harpa Vignisdóttir að taka sig ægilega á.. jájá ég er byrjuð að fara út að skokka, ætla að skokka 5 km á man þri og fim og svo fótboltaæfingar á þriðjudögum, miðvikud,fimmtudögum og föstudögum. Þetta verður voða gaman. Mér líst mjög svo vel á nýja fótboltaþjalfarann.

- Alla er alveg í skýunum þessa dagana. vegna þess að það er verið að gera mynd um sex and the city og kallinn Öllu er að leika í þeirri mynd

- Alla er ennþá meira i skýunum af því litlu tvíburafrænkur hennar komu óvænt til íslands :):)

- Jón Már litli frændi varð 16 ára i fyrradag til hamingju með það gamli;*

- Ég ákvað að fara í skóla í Borgarnesi, bæði ódýrara þægilegra og e get unnið með skólanum og lika æft fótbolta og búið heima hjá mor og far

- Ég skrapp með Gunnu mæju að smala um daginn.. sem var bara voðalega ljúft.

-  ég er ömurlegasti bloggari i veröldinni

- litla guðdóttir mín hún Halla Bryndís varð 1 árs um daginn:)

ég ætla bara að láta þetta gott heita og hafa meira að segja næst þegar eg blogga,,,

þ.e.a.s. ef það verður eitthvað næst :P

- EsterKoss

hér er Ester Pirraða, um frá og til líkaEster Harpa Vignisdóttir

Ég er pirruð! mjög pirruð! meira að segja meira pirruð en mjög pirruð!

Ég hef verið að hugsa siðustu daga. hvernig sé hægt að eiga einhvern besta vin og þá meina ég sko bestasta besta vin....! hvernig er hægt að skipta honum út fyrir eitthvað sem maður veit ekki hvort eigi eftir að endast?

SÁR, REIÐ, SVEKKT OG LEIÐ... MEIRA AÐ SEGJA PIRRUÐ LÍKA!

Ég er pirruð út af öðru.

Maður á góðan vin.. af gagnstæðu kyni.. Við umgöngumst hvort annað! það er ekkert meira en það. Vinurinn misskilur það! þó svo að maður gefi ekkert undir fótinn! Vinurinn hættir að tala við mann og vill ekki þekkjan mann lengur.

-----------------------------------------------------------------------------------------


Fréttir !!!


- Ég er hætt að vinna í Geirabakarí út af fótboltanu, vinnutiminn og æfingartíminn voru á sama tíma....


-Ég fór aftur í hyrnuna.


-Ég verð líka að þjálfa fótbolta í sumar:)


- Ég er að fara til ólafsfjarðar á laugardaginn


- ÉG er í mjög pirruðu skapi


- Kannski gelgjukasti


- Ég veit ekki hvða ég á að skrifa þannig ða ég er bara hætt...


bless i bili Ester Harpa

18 ára...Ester Harpa Vignisdóttir

Eins og flestir sem lesa bloggið mitt vita þá varð ég 18 ára um helgina og ákvað að halda smá stelpupartý á föstudaginn fyrir stelpurnar sem eg umgengst daglega, eða bara mínar allra bestu vinkonur. Reyndar vantaði bara eina hana Sigríði Soffíu sem býr fyrir norðan.

Afmælið byrjaði þannig að pabbi skutlaði okkur stúlkunum upp í Brún og við fórum þar í heita pottinn í ágætistíma. Svo kom gamli bara og sótti okkur, var hann þá ekki kominn í jakkaföt með svona pípuhatt eða hvað sem þetta heitir nú... ekkert smá flottur á því. Þegar heim var komið voru foreldar mínir búnir að elda þennan dýrindiskvöldverð handa okkur. Eftir matinn fórum við i eitthvað spil sem stóð ekki lengi.. Það voru greinilega svona mikil læti í okkur að mamma og pabbi hreinlega flúðu út.. Svo var farið í Sing star og eitthvað út bara...

Á laugardeginum var haldið upp á afmælið mitt í 2 skiptið hehe... En þá var það elskulegi kærastinn minn sem bauð mér út að borða á Madonna, ekkert smá flottur á því. Fengum þar dýrindiskvöldverð, bara einn besti matur sem ég hef smakkað. Ekki nóg með það að hann hafi boðið mér út að borða á þessum flotta stað, hann gaf mér líka ótrúlega fallega afmælisgjöf, ég er ennþá að hugsa hvort ég eigi að gráta eða brosa yfir afmælisgjöfinni;* en hann gaf mér ótrúlega fallegt armband og armbandsúr sem er alveg jafn fallegt:* Eftir matinn fórum við í bíó á myndina last king of Scotland, ekkert smá góð mynd. Mamma og pabbi hringdu í okkur þegar við vorum nýbúin í bíóinu og báðu okkur að skutla þeim heiman að frá Gulla frænda og  upp á hótelið sem þau ætluðu að gista á. Við kíktum smá í heimsókn til Gulla sem var bara ágætt:) Eftir það skutluðum við M+P upp á hótel og fórum svo sjálf á gistiheimilið sem við ætluðum að gista á.

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að þakka Herði fyrir þetta allt, ég held að það sé bara varla hægt. En þetta var án efa besti afmælisdagur sem ég hef upplifað, takk kærlega fyrir mig ástin mín;*

- Ester

Blogg var þaðEster Harpa Vignisdóttir

jæja jæja jæja.. þá eru næstum komnir 2 mánuðir.. ég var að spá í að hætta bara, en vegna þess að aðdáendur voru alltaf að ýta á mig til að blogga þá held ég að það sé best að blogga svona einu sinni í viðbót.. aðallega fyrir Inga samt...

Svona fyrir þá sem búa fyrir norðan eða einhverstaðar annarstaðar og heyra lítið í mér þá er margt búið að breytast síðan síðast. ég ætla bara að punkta það hérna niður

- Um mánaðarmótin jan-feb sagði ég upp í hyrnunni, var alveg komin með upp í kok af þessu aukaálagi sem maður var orðinn fyrir vegna skorts á starfsfólki þarna. Það var alltaf verið að hringja í mann og biðja mann um að koma að vinna, en maður fékk ekki borgað fyrir neitt aukaálag. Þetta var bara orðið frekar þreytandi.. En samt sem áður fínt að vinna þar ef maður er í góðra vina hópi

- Ég fékk strax nýja vinnu í  Geira Bakarí sem er við hliðiná Bónus svona ef einhverjir vilja kíkka á mann (Y) alltaf heitt á könnunni (hehe). Ég er mjög sátt í bakaríinu, tekur náttúrlega sinn tíma að komast inn í þetta en það kemur vonandi. Við Gogga (Álfheiður) ætlum að vera að vinna þarna í sumar, og það leggst bara mjöög vel í mig. Get hreinlega ekki beðið eftir sumrinu.

-Álfheiður og Ásta tóku þátt í undankeppni fyrir söngvakeppni framhaldsskólana og að mínu mati voru þær framúrskarandi lang bestar :) Ég held að ég hafi verið með gæsahúð allan tímann á meðan þær voru að syngja, en já þær fara víst norður á land til að keppa fyrir hönd Fjölbrautaskólans á Akranesi og ég er alveg viss um að þær eigi eftir að standa sig með prýði.

- svo er maður komin á pikkfast með Herði Unnsteinssyni, sem er án efa æðislegasti drengur sem ég hef kynnst.. Koss

- Fór suður um daginn að passa fyrir Halla bróðir pabba, hann er búinn að fá sér hund og snjósleða. bara veldi á kallinum, Haraldur ég er enn að bíða eftir þvi að þú bjóðir mér á sleða...

- Styttist í páskafrí:):) ég get hreinlega ekki beðið. Ég er komin með svo mikla heimþrá til Ólafsfjarðar að það er ekki venjulegt. Get ekki beðið eftir að hitta vini mína þarna norðan heiða.

- ennþá styttra í afmælið mitt, einungis 2 dagar og stelpan verður sjálfráða. Það verður haldið eitthvað smá stelpukvöld heima á hvanneyri svona fyrir mínar allra nánustu vinkonur, þetta verður örugglega bara voða nice. Eða ég vona það

- Alla vinkona hélt smá afmælismatarboð fyrir mig um síðustu helgi. Bauð okkur Herði í dýrindiskvöldverð sem var bara dásamlegt, eftir það fórum við Hörður suður á kaffihús og hittum þar Gumma og Hófý sem var líka voða fínt.

- svo eitt nöldur hérna í lokin... mig langar alveg óendanlega mikið að flytja í stærra hús, ég er orðin hundleið á því að vera í einhverjum 70 fermetrum þar sem við erum 5 manns í fjölskyldunni.. en vonandi fer þetta að breytast, trúi ekki öðru

- eitt enn.... hún Katrín Jónsdóttir móðir mín er farin  ganga með gleraugu:) reyni að koma með mynd af því við fyrsta tækifæri hahahahahaha:) ég og pabbi erum búin að gera mikið grín að greyið konunni..

- Ég skrapp aftur til Reykjavíkur með múttu og krökkunum um daginn. en þá til þess að horfa á Jón Már í músiktilraunum. Hittum Bryngeir og Síssu þar sem rosa gaman. Skrítið samt með þessar musiktilraunir það er alltaf eins og mestu lætin vinni alltaf... þ.e.a.s. þungarokk og dauðarokk eða hvað sem þetta heitir nú allt.. mér fannst jón már og þeir bara lang bestir þó svo að þeir hafi ekki unnið

- jæja ég ætla að spara puttana fyrir næsta blogg... eða til að vera alveg hreinskilin þá er tíminn búinn og eg ætla að fara að ganga frá... þar til næst.. AdIoS ;*

Ester Harpa

veik í rúma viku:OEster Harpa Vignisdóttir

Góðann daginn. Ég held að ég sé þessi manneskja sem bloggar á 2-3 mánaða fresti.

Allavega þá er helgin búin að vera viðburðamikil hjá mér:)

Á föstudaginn þá vorum við Linda að þjóna í afmælinu hjá pabba hennar Rakelar. sem var mjög gaman. Rakel dúlla söng til pabba sinn og stóð sig eins og hetja, ég og linda vorum við það að fara að gráta þetta var svo krúttlegt. Nenni eiginlega ekki að segja mikið frá þessu afmæli nea það að þetta var alveg geggjað gaman og í restina þá fóru allir að dansa, og þeir sem þekkja mig vita það að ég er ekki mikill dansari eða bara alls enginn dansari. En Linda Rakel og Kela náðu mér út á gólfið og við tókum okkar ágætu spor hahaha... Eftir það fórum við bara að rúnta og heldum áfram að skemmta okkur...
Alveg frábært kvöld:*

Ég fór svo til Ólafsfjarðar á laugardagsmorguninn og svaf held eg bara mest alla leiðina þangað. eða vaknaði í varmahlíð og keyrði norður, leysti greyið gömlu kerlinguna af.

Þegar vi komum til Ólafsfjarðar þá fórum við heim til afa og ömmu og knúsuðum þau eins og við gerum venjulega þegar við komum norður:) ohh þau eru svooo mikil krútt
Fengum auðvita dýrindis mat hjá þeim eins og venjulega.

en svo má ekki gleyma að ég hitti svona flesta vini mina sem eg hafði ekki hitt lengi.. Hitti Inga, Björgvin, Jón Már og Hjalta... náði ekkert að hitta hana síssu:/  en það verður bara næst..


Á sunnudeginum fórum við Hjalti í sund með bróðir hans.. það var voða næs.. Hann tók mig svona á axlirnar og skaut mer upp í loftið og eg hef sjaldan farið eins flugferð.. Eftir sundið fórum við bara einn svona kveðjuhring hittum þar Gulla á nýja bílnum og fórum einn hring. Svo lá leiðin bara suður og eg fór beint á vistina og nældi mér í pestina..:/ AFTUR... nóg í bili

verð her eftir 2-3 mánuði næst

- Ester Harpa

Nenniru að gera þetta? :)Ester Harpa Vignisdóttir

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

 4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Uppáhalds búð:

 8. Tattoo eða göt:

 9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

 17. Getum við hist og bakað köku saman?

 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

 22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

 24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera saman?

27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Djúpa Laugin!!!Ester Harpa Vignisdóttir

góðan daginn..

skondið með sjálfa mig..! ætli ég taki svona blogg tarnir þar sem eg "nenni" að blogga.. en vonandi að þessi blog törn verði lengir fyrir þessa fáu aðdáendur mína.

annars hefur voðalega lítið drifið á daga mina siðan eg bloggaði síðast..

Annars tók stelpan þátt i djúpu lauginni á kaffihúsarkvöldi í skólanum. Svaka stuð. ég var að spurja spurninganna  og þurfti svo að velja á milli 3 drengja.. ÓTRÚLEGA ERFITT VAL:) en það var hann Trausti beibí sem "vann mig" og við förum einhverntima ut að borða á galito eða hvað sem þetta heitir:) Eftir djúpulaugina þurftum við að fara í útvarpið og var þá hann Skarphéðinn nokkur Magnússon að taka viðtal við okkur.ég segi nu bara eitt.. gat það ekki veirð einhver annar hehehe.  En það var allt i lagi. svo var hringt inn og spurt okkur hvernig okkur liði. og svo var eg spurð að einni spurningu HVAÐAN ÉG VÆRI!! hehhehe..

eg nenni ekki að skrifa meira:) bæ i bili

jæja aðdáendur nú er loksins komið að þvíEster Harpa Vignisdóttir

ESTER HARPA VIGNISDOTTIR ER AÐ BLOGGA...

og viti menn... hún nennir því ekki....


en allavega í dag er 9 okt og hun amma mín a afmæli eftir 2 daga:)

hmm það sem hefur drifið á daga mina sl klukkutima, daga,  eða bara mánuði...

ég fór til reykjavíkur um daginn með Lindu&Rakel.. fórum i kringluna og versluðum þar auðvita eitthvað aðeins... svo fórum við til halla frænda.. hann setti græjurnar í bílinn minn:D ég er með geislaspilara í bílnum :D jeiiiiijjjj:D

Annars var þetta bara róleg helgi hjá mer.

á föstudaginn var eg búin i skolanum kl 2... fór þá i klippingu með róbert:) ég er orðin ljóshærð aftur:D gaman gaman... eftir það for eg á hvanneyri og Linda með :D eða eg skutlaði henni i borgarnes heimsótti Ívar og Bjögga í vinnunna og við 3 fórum svo bara a runtinn eftir vinnu hjá þeim...

á laugardaginn vaknaði ég við það að Emma hringdi i mig og bað mig að koma ða vinna kl 6.. og auðvita gerði eg það.. maður er nú einu sinnni fátækur námsmaður.. en áður en eg fór að vinna þá fór með mömmu og elsu á skagan að tjilla eitthvað og svo bara heim og eg fór að skokka og svo i sturtu og að vinna til 11 eftir vinnu for eg að runta með ívari og Bjögga... og ivar gaf okkur big red... ogfór siðan heim.. og eg skutlaði honum Bjögga heim til sín upp í sveit og fór sjálf heim:) til að gera langa sögu stutta þá skutlaði eg mömmu og pabba niður á venus en þau nenntu ekk að vera þar þannig að eg skutlaði þeim bara aftur hiem og ætlaði að fara að runta með arnóri og gerði það jú en i milli tiðinni þá stoppaði löggan mig.. bara svona tékk.. og svo eftir runtinn með nóra fór eg bara heima að sofa...

sunnudagur... fór i borgarnes með systkinum minum,  og sagði hæ við ívar og bjögga... og svo bara heim að horfa amynd með systkinum minum og pabba og svo eftir það út að skokka.. og svo sturta, svo buðu foreldar minir okkur systkinumnum út að borða :D...  svo lá leiðin bara á skagann... og svo kom nóttin og manudagurinn og eg sit hér

ester hv

"maður er manns gaman"Ester Harpa Vignisdóttir

góðan daginn.. ég ætla að skella herna inn nokkrum orðum...

Annars vaknaði eg i morgun við það að hun alla kom inn og vakti mig... og eg ætlaði að fara að tannbursta en þá var bara ekkert vatn á vistinni..:O ömurlegt eða hvað.. þannig að eg matti gjöra svo vel að fara eins mygluð og eg vaknaði i skolan. ég sver það, það var svo mikil rigning aðan að eg hefðoi alveg eins getað tekið sjampóið með mer ut og farið bara í sturtu
Annars var það bara félagsfræði og enska i morgun.. vorum við Birna Lára að gera eitthvað verkefni í félagsfræði sem gekk jaaa segjum bara að það hafi gengið :)
svo var það enskan, við þurftum að lýsa herberginu okkar en ég ætlaði að gera það i morgun en svaf þá(hafði voðalitið sofið um nottinaÓákveðinn) þannig að ester harpa er bara einhver tossi og sleppti því að læra. Ég og Alla vorum eitthvað að ræða það fram á gangi og komumst að þeirri niðurstöðu að eg myndi bara segja við kennarann að eg hefði ekki getað lært vegna persónulegra ástæðna. og auðvita var það gott og gillt hjá okkur :) þannig að eg er bara eitthvað að fara að læra i ensku nuna a eftir og á eftir að klara þennan pistil fyrir 4 i dag;) en það reddast auðvita :) þessi pistill er eitthvað svaka bull sko.. við eigum að lýsa hugtakinu "maður er manns gaman"

Svo er eiki buinn að lofa mer að fara a krossara:) ég get varla beðið... svo er það öugglega bara vinna um helgina;)

nenni ekki að hafa það lengra i bili;) blessóóó

ísland 0- ítalía 1Ester Harpa Vignisdóttir

jæja jæja jæja... ég var að koma af leik islands og italiu fyrr i dag.. þ.e U-21 landsleikur.. Ég fór nú mest til að horfa á hann Ara keppa..:* maður ser hann svo sjaldan þessa elsku... en allavega þá fórum við linda rakel og alla suður... náðum í hafþór andra...
Svo var skundað niður í glæsibæ og keypt ljósbláar linsur... en það versta er að eg kann ekkert að setja þær á mig... það kemur nú vonandi með timanum:)
eftir glæsibæjarferðina fórum við á mcdonalds (að ósk Hafþórs) en við vorum orðnar svo seinar á leikinn að við gátum ekkert étið matinn okkar.. Á leiknum hittum við Jonna, Láru, Magga og einhvern sem var með Magga:) þegar við vorum á leiðinni út af leiknum vildi svo skemmtilega til að jonni og lara sáu sæta bílinn minn og gerðu því mikið grín af honum.. en það er bara fyndið:) hann er nú engin ofurmódel :)

Svo í kvöld var það bara Busaballið... mér fannst ekkert spes!!! og ekki skemmtilegur Dj... þannig að eg er farin að sofa góða nótt ;)


eða súl súl:D

Auglýsing

Leikur dagsins